Við erum hér fyrir þig
Þarftu að tala við einhvern? Ekkert vandamál er of lítið eða of stórt. Við erum hér til að hlusta á þig , þér að kostnaðarlausu.
Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára. Með fræðslu og stuðningi finnum við leiðir í sameiningu að bættri líðan og eflum virkni ungmenna í samfélaginu. Þjónustan miðar að því að efla þátttöku og þekkingu ungmenna sem og að auka tengsl þeirra við samfélagið.
Hvernig getum við hjálpað þér
Ráðgjafarnir okkar aðstoða ungt fólk sem til dæmis glímir við
- Áhyggjur
- Depurð
- Erfiðar tilfinningar
- Sjálfskaða eða sjálfsvígshugsanir
- Erfiðleika í samskiptum við vini eða foreldra
- Hafa orðið fyrir eða beitt ofbeldi
- Vantar að tala við óháðan aðila
- Ekkert vandamál er of stórt eða of lítið
Hvernig virkar skráning í þjónustu hjá Berginu?
Smelltu á hnappinn „óska eftir þjónustu“
Fylltu út formið
Skráðu þig hjá Kara connect
Ráðgjafi verður í sambandi við þig og þið finnið tíma sem hentar
Ef þú ert í hættu eða neyðin er mikil, hringdu í 112 eða í hjálparsíma Rauða krossins 1717
Að þekkja einkenni
Kvíði
Óhóflegar áhyggjur sem erfitt getur verið að stjórna og geta versnað með tímanum. Líkamleg einkenni kvíða geta verið þreyta, eirðarleysi, pirringur og vöðvaspenna.
Þunglyndi
Þunglyndi er geðröskun sem veldur vanlíðan með langvarandi vonleysi og depurð. Líkamleg einkenni þunglyndis geta verið þreyta, breyting á matarlyst, munnþurrkur, hægðartregða, svefntruflanir og stoðkerfisverkir.
Ofsakvíði
Skyndilegur ótti og hræðsla án ástæðu. Líkamleg einkenni ofsakvíða geta verið svimi, flökurleiki, óraunveruleika tilfinning og erfiðleikar með andardrátt.
Sjálfsskaði
Sjálfskaði er þegar einstaklingur veldur sjálfum sér skaða í þeim tilgangi að takast á við sársaukafullar tilfinningar og hugsanir.
Áfallastreita
Vanlíðan í kjölfar alvarlegs áfalls eða lífsreynslu. Líkamleg og andleg einkenni áfallastreitu geta verið félagsleg einangrun, áhugaleysi, svefntruflanir, einbeitingarskortur, pirringur, reiði, sektarkennd og sjálfsásökun.
Geðröskun
Truflun í hegðunarmynstri og andlegri líðan einstaklings sem veldur vanlíðan og dregur úr getu í daglegu lífi. Tæplega einn af hverjum tíu einstaklingum, átján ára og eldri eru með geðröskun.